ULBC Daypack 25 er minni útgáfan af bakpokanum í ULBC línunni (Ultra Light Back Country) Hann er léttur, rúmgóður, þægilegur og pakkaður af eiginleikum og lausnum. Formið á bakpokanum er nett og úthugsað til að hafa ekki áhrif á fluguköstin eða flækjast fyrir í þröngum aðstæðum.
Aðalefnið í bakpokanum er 72% endurunnið Robic® Mipan Regen® nælon og 28% N/66 ripstop. Hann er með vatnsfráhrindandi PU-húðun til að vernda innihaldið í rigningu en er ekki 100% vatnsheldur. Allir rennilásar eru frá YKK® sem hafa sannað gildi sitt og liturinn er Charcoal/Algae Green (grár og grænn). Þetta er 25 ltr bakpoki sem vegur aðeins 900 gr með regnhettu.