Með því að nota nýja tækni með minna lími í grafít-klæðningunni eru þessar stangir svolítið léttari og skarpari en fyrri stangirnar í flugustangarpökkunum sem Guideline hefur verið með undanfarin ár. Það eru líka nokkrar nýjar, mjög áhugaverðar, léttari og styttri tvíhendustangir sem munu henta yngri nýliðum í fluguveiðinni. Splunkunýju, hágæða FAVO fluguhjólin eru með töff útlit og passa fullkomlega á stangirnar ásamt sérsniðinni Multi tip skothausa Guideline WF línu, valin til að passa stangarlengd og stangartegund. Þessir pakkar eru samsettir til að vera tilbúnir í veiði beint úr stangartöskunni. Bættu bara við flugum sem þú velur, hnýttu á taumendan og byrjaðu að veiða.
Einhendurnar koma með Guideline FAVO 46 fluguhjóli, WF flotlínu, og taum. Switch stangirnar og tvíhendurnar koma með Guideline FAVO 79, og 810 fluguhjólunum, og Multi Tip línukerfi.
Kaitum 9′ #5 og 9′ #6 stangirnar eru með half wells handföngum með hjólsæti úr áli með svartri innsetningu.
Þú ert klár í veiði með þessu – bara bæta við flugum.
YFIRLIT YFIR STANGARPAKKANA
Módel | Gerð stangar | Lína | Hlutar | Hjól |
---|---|---|---|---|
Kaitum | Einhenda 9′ #5 | WF Flotlína | 4 | FAVO 46 |
Kaitum | Einhenda 9′ #6 | WF Flotlína | 4 | FAVO 46 |
Laxá | Switch 11′ #7/8 | Multi Tip WF | 4 | FAVO 79 |
Laxá | Tvíhenda 12´ #7/8 | Multi Tip skothausar | 4 | FAVO 79 |
Laxá | Tvíhenda 12´6 #8/9 | Multi Tip skothausar | 4 | FAVO 810 |
Laxá | Tvíhenda 13’7 #9/10 | Multi Tip skothausar | 4 | FAVO 810 |