Iridescent þráður er þráður með litabrigðum og er í raun tvinni á milli hnýtingaþráðar og rúnaðs tinsels. Þetta er fínt tinsel vafið utan um monofilament þræði sem kjarna. Við hnýtingar hegðar hann sér eins og fínn vír, þéttvafinn um öngulinn gefur hann afskaplega skemmtilegt útlit með litabrigðunum og hentar í allar gerðir af flugum, tilvalinn í laxa- og silungaflugur sem búkur eða smærri áherslur með víbrandi útlit.
Það eru 45m/49,2 yards (u.þ.b.) á hverri spólu af Iridescent þræði.