„Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn hefur náð mörgum laxinum nú þegar. Hin mikla andstæða frá hvítri túpunni á móti svörtum vængnum hjálpar til að fá fiskinn til að taka. Urtandarfjöðrin gefur henni svo dreitil af klassísku útliti. Heilt á litið er þessi í uppáhaldi hjá flestum og hægt að veiða með við flestar aðstæður í flestum stærðum. Ég vel hana helst þegar vatnið er tært á skýjuðum degi. – Mikael Frödin“
SAMURAI SERÍAN
Þessi langa og granna fluga fæddist upphaflega sem Collie Dog og Sunray Shadow. Þær voru fljótt viðurkenndar sem ákaflega áhrifaríkar og hafa síðan þá verið í uppáhaldi marga laxveiðimanna. Frödin hefur aldrei líkað að veiða á annarra hugmyndir, dropaformið er honum kært og Samurai flugurnar hafa reynst frábærar. Samurai flugurnar eru hnýttar á sérstakan máta. Lítill turbo kónn í samblandi við langan og beinan væng gefur flugunni langt dropaform. Þetta eru grennstu flugur sem Frödin Flies framleiða. Fluga sem er ætluð til að veiða á mikilli ferð. Því lengur sem við höfum verið í laxveiði, því hraðar strippum við fluguna. Hin hraða og granna Samurai fluga getur blekkt stærstu og erfiðustu laxa hylsins. Þorir þú að veiða þær nógu hratt?
Eiginleikar
- Grönn og löng uppsetning
- Tungsten turbo keila
- M FITS túpa
- Glæsilegur fjarska prófíll
- Áhrifarík þegar strippuð hratt