Prom Dress eru frábærar intruderflugur sem ættu að henta einstaklega vel í sjóbirtinginn, en upprunalega voru þær hannaðar fyrir steelhead veiðar.
Það er nóg af glitri og skærum litum í þessum og eru þær gríðarlega líflegar í vatni. Þær koma með dumbell augum sem lætur þær sökkva hratt og vel.
Prom Dress serían af intruder flugum var upprunalega hnýtt af veiðisnillingnum Steve Howell og var fyrst gerð opinber í kringum 2009. Þessi sería af flugum hefur verið einstaklega vinsæl í Bandaríkjunum á meðal Steelhead veiðimanna.