Þessi gerð af Damsel er ein sú “pöddulegasta” og ein sú náttúrulegasta í seríunni. Með langt ólífu marabou skott og blátt flass á báðum hliðum með skottinu. Búkurinn er gerður úr sérstakri blöndu af selsfeld og er ólífulituð akurhæna notuð sem kambur utan um hausinn til að líkja eftir löppum. Hausinn er fluorocent appelsínugulur 3.3mm kúluhaus með máluðum augum.