High N Dry duft flotefnið með burstanum, gerir mjög fína og jafna húð úr vatnsfráhrindandi ögnum á þurrfluguna og efnið er nánast ósýnilegt! Þetta efni fangar loft og eykur flot þannig að það er hægt að nota það á bæði þurrflugur og púpur. Duftið er hannað þannig að það klumpast ekki og ofhleður því ekki burstan.
Burstinn er mjög nákvæmur í skömmtun og auðvelt að setja efnið á hluta af flugunni. Algjör snilld á allar CDC flugur.
Magn efnis: 51gr
Heildarþyngd: 99gr