Guideline Loft jakkinn er einstaklega hentug flík fyrir allt veiðitímabilið. En hann er meira en það – hann er einnig frábær alhliða útivistarkjakki.
Jakkinn er með einstaklega lítið pökkunarrúmmál og kemst fyrir í einum af eigin innri vösum þegar þú ert á ferðinni! Jakkinn er með 60gr af fyllingu og er hannaður til að vera notaður stakur, sem ytra lag á köldum dögum eða sem miðlag undir vöðlujakka þegar rignir. Jakkinn kemur með þægilegri hettu til að verjast veðri og vindum. Bakið er lækkað niður til að ná fram betri einangrun og hlýju. Hann kemur með einum innri vasa og tveimu ytri vösum.
GUIDELOFT™ EINANGRUN
Guideloft™ er fyrsta flokks einangrunarefni sem veitir frábæran hita á móti þyngdarhlutfalli. Efnið er hannað til að halda líkamanum heitum og þurrum í köldum aðstæðum. Framleitt úr 100% endurunnu pólýester efni með blöndu af holu og heilu garni sem heldur efninu einstaklega kröftugu en er með mjúkri áferð og einstaklega góðum pökkunareiginleikum.
Í HNOTSKURN
- Einn innri vasi og tveir ytri vasar.
- Allir vasar með YKK rennilásum.
- 60 grömm Guideloft ™ einangrunarfylling.
- Innra og ytra byrði er framleitt úr 100% endurunnu 20D nælonefni, Bluesign® vottað.
- Ytra byrðið er með C0 fluorocarbon fría DWR gegndreypingu.
- Þyngd: 430 gr í stærð L.
- Litur: Valhnetu/Þörunga grænn