Elevation stangarserían frá Guideline eru ofurléttar, miðlungshraðar stangir. Hannaðar fyrir veiðimenn á öllum stigum. Notast er við sjálfbært framleiðsluferli og umhverfisvæna hluti.
Notast er við allra nýjustu efnin og tæknina í framleiðslu á þessum byltingarkenndu stöngum, auk þess, þá eru notaðir í þær margir umhverfisvænir íhlutir.
Guideline hefur hafið græna vegferð að vörum framleiddum eftir sjálfbærum leiðum og mun þessi stöng verða vegvísir að framtíðarstöngum Guideline. Unnið hefur verið hörðum höndum í þróunarferlinu að gera þessar stangir að besta vali fyrir alla veiðimenn sem annt er um umhverfið. Í þróun á stangarhlutunum var allt efni sem ekki var nauðsynlegt fjarlægt. Það hefur gefið Guideline einnig þann möguleika að fylgjast með orku og krafti hvers stangarhluta af mun meiri nákvæmni. Þessar stangir eru ótrúlega léttar og með mikla virkni, en samt sterkustu ‘venjulegu’ stangirnar sem Guideline hefur framleitt.
Stangirnar eru með næman topp sem er einstaklega stöðugur og nákvæmur, með smátt vaxandi mýkri sveigju niðureftir stangarhlutunum niður í kraftmikinn neðsta hluta. Það er einstaklega ljúft og einfalt að kasta með þessa virkni í stönginni, með mikla fyrigefningu og framkallar nákvæm köst með miklum línuhraða. Stangirnar hafa allar frábæra línutilfinningu og henta fyrir allar gerðir af kaststílum.
Þetta eru frábærar grænni nútímastangir með virkni sem hentar veiðimönnum á öllum stigum.
Módel | Lengd | Línuþyngd | Þyngd | Hlutar | Handfang | Leiðbeinandi hausþyngd |
Elevation 905 | 9´ | #5 | 72gr | 4 | Full wells & microbutt | 11-13gr / 170-200 grains |
Elevation 906 | 9´ | #6 | 74gr | 4 | Full wells & microbutt | 13-15gr / 200-230 grains |
Elevation 907 | 9´ | #7 | 84gr | 4 | Full wells m/ butt | 17-19gr / 260-290 grains |
Elevation 908 | 9´ | #8 | 88gr | 4 | Full wells m/ butt | 19-21gr / 290-325 grains |
Elevation 996 | 9´9″ | #6 | 91gr | 4 | Full wells m/ butt | 13-15gr / 200-230 grains |
Elevation 997 | 9´9″ | #7 | 92gr | 4 | Full wells m/ butt | 17-19gr / 260-290 grains |
Elevation 998 | 9´9″ | #8 | 93gr | 4 | Full wells m/ butt | 19-21gr / 290-325 grains |
Elevation 1006 | 10´ | #6 | 91gr | 4 | Full wells m/ butt | 13-15gr / 200-230 grains |
Elevation 1007 | 10´ | #7 | 96gr | 4 | Full wells m/ butt | 17-19gr / 260-290 grains |