Þú munt taka strax eftir þeim í nýjum hönnunaratriðum, en vertu viss um að taka eftir bættum árangri í efni með enn betri öndun og vatnsheldni, auk léttari heildarþyngd.
Þessar vöðlur eru með enga sauma. Ultra Sonic samsuðu-tækni er notuð á öllum helstu samsetningum. Ný skurðartækni hefur gert það kleift að nota tvær mismunandi gerðir af Taslan Nylon efni sem nýtist með sterkari og meira slitþolnu efni að framan, innanverðum fótum og á sætisvæðinu á meðan minna krítísk álagssvæði eru léttari með öðru efni. Skurðurinn útilokar sauma á innanverðum fótum en viðheldur réttri mátun og frelsi til hreyfinga.
Í vatnshelda aðalrennilásinn notar Guideline þýska TiZip vörumerkið, sem býður upp á betri sveigjanleika og styrk.
Tveir lóðréttir vasar fyrir stór flugubox, en vinsamlegast athugaðu að þessir vasar eru EKKI vatnsheldir og geymdu því ekki í þeim rafeindabúnað eða annað sem er viðkvæmt fyrir raka og bleytu. Ennfremur eru tveir möskva-vasar með nóg pláss fyrir aukahluti.
Flís klæddir vasar til hliðar halda höndunum heitum í köldu veðri.
Á báðum hliðum við aðalrennilásinn eru lóðréttar verkfærastikur fyrir festingarbúnað. Það er D-hringur aftan á vöðlunum og vöðlurnar koma með 5mm neoprene belti.
Neoprene sokkarnir hafa gúmmístyrkingu og sveigjanlegu neoprene sandhlífarnar eru þéttar með krækju-festingu á vöðluskóna.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
Öndun | 7000 |
Litur | Grafít/Kol |
Efni | Fjögurra laga 100% Nælon Taslan |
Vatnsheldni | 25000 |
Þyngd | 1183gr / stærð L |
Rennilásar | TiZip vatnsheldir á framhlið |